17. september 2008

Úff, það eru allt of margar myndir sem bíða eftir að komast hingað.


5. ágúst 2008

Sum barnalög eru betri en önnur.

Ég heyrði eitt frekar krípí í dag.

"Það er svo gaman að vera í skóla á milli nýárs og jóla. Það er svo gaman í kaldri sturtu, ef leikfimikennarinn er langt í burtu."

Ég ætla nú rétt að vona að leikfimikennarar haldi sig ALLTAF langt í burtu þegar börnin fara í sturtu. Ekki finnst mér eðlilegt að leikfimikennarar horfi á krakkana sturta sig. Mig hreinlega klígjar af tilhugsuninni.


31. júlí 2008

Ég var að sjá auglýsingu á skjá einum um "glææænýjan íslenskan þátt". Hann er svo íslenskur að nafn hans var kynnt á ensku.


4. júlí 2008

Það er svolítið súrrealískt að sjá syngjandi hressa rútubílstýru sem við mæðgurnar vorum farnar að þekkja allvel (eða svo héldum við) bregða fyrir sem stálhörðu glæpakvendi í Taggart. Eða sjá manninn sem segir sögur fyrir svefninn skyndilega vera valdasjúkan milljónera sem safnar vændiskonum og muna þá skyndilega að hann var líka skuggalegur geðlæknir lítillar stelpu sem reyndist síðan vera einhvers konar tölvukerfi sem hreinsaði út vírusa og ekki alvöru geðlæknir.

Það er ekki svona auðvelt að gleyma því að leikararnir séu sko bara allt í plati þegar maður er að horfa á stórmyndir með frægum leikurum.


1. júlí 2008

Ég held að Sjónvarpið hefði mátt sleppa nokkrum rándýrum og grútleiðinlegum dagskrárliðum síðastliðinn vetur áður en farið var í það verk að reka starfsmenn.

Hvert fór sumarið annars? Það er því sem næst búið og mér finnst það varla hafa byrjað!


21. júní 2008

Það er ekki alltaf gott að hafa rétt fyrir sér. Ég hef þurft að þola háð og spott fyrir að maka barnið mitt út í sólarvörn. Svo að ég bakkaði og hætti að klína sólarvörninni í hárið á henni.

En hvað haldið þið að hafi gerst í dag? Hún sólbrann á kollinum!!! Það er ekki tekið út með sældinni að hafa svona hvíta húð, skal ég segja ykkur.

Þökk sé sólarvarnarmaníu minni og einstaklega björtum dögum undanfarið býðst ykkur nú að sjá myndir af "goffick" barninu mínu með ofurhvítu sólarvörnina.

Það er svalt að geta setið vð tölvuna eftir viðburðaríkan dag og horft út í ofurbjarta sól. Það er ekki svalt að standa í búð með bullandi ofnæmi og ráðast heiftarlega á eldrautt nefið sitt eins og einhver útúrsjúskaður kókaínfíkill.


12. júní 2008

Barnið hefur einstaka sinnum sveipað sig í borðdúk og gengið um á dramatískan hátt. Þess vegna fannst mér frábær hugmynd að útbúa skikkju-kápu hana henni.

Hún sýndi þessu áhuga, fyrst um sinn. En eftir því sem leið á saumaskapinn dvínaði áhuginn. Eflaust af því að hún fékk ekki að snerta saumnálina sem henni þótti agalega spennandi.

Þegar saumaskapnum lauk vildi hún ekki sjá skikkju-kápuna. Ekki séns. Ég sem hafði verið svo spennt yfir því að sjá hana spígspora um í nýju skikkju-kápunni sinni. Ég þori ekki einu sinni að hugsa um það hversu fúlt það verður þegar hún verður stór og kærir sig ekki um að spila með í stærri og flóknari væntingum mínum.

Myndir af dramatíska meistaraverkinu mínu eru komnar í "ljósið".


10. júní 2008

Jæja, ég kom mér loksins til að uppfæra myndasíðuna.


9. júní 2008

The Swedes are pulled out of the ground and all the dust is brushed off. They fill a crate with Swedes. They look really heavy.

Hverjum hefði dottið í hug að Swede sé grænmeti? Rófa minnir mig að þetta heiti á íslensku.

Ég held ég ætti að fara að taka upp gamla iðju og fara að fletta ensku orðabókinni mér til skemmtunar.

6. júní 2008

Ég er eftirlýstur glæpamaður. Ég er hundelt, fæ ótal símhringingar frá reiðum konum, endalausar tilkynningar í pósti og nú síðast sérstakt ábyrgðarbréf sem ætlað var að tilkynna mér hversu mikill glæpamaður ég er.

Glæpurinn: Ég hef kosið að seinka næstu leghálskrabbameinsskoðuninni minni um nokkra mánuði.

Kannski er ég ein á þeirri skoðun, en mér finnst fullmiklum tíma og pening hafa verið sóað í að tilkynna mér hversu glæpsamleg ég sé fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun. Ég er viss um að það væri hægt að eyða þessum pening í eitthvað skynsamlegra. Og hvað þá með friðhelgi einkalífsins og persónuverndarrétt og hvaðeina?

4. júní 2008

Af hverju er "blessingly" orð en ekki "blessfully"? Hver semur þessar reglur?

23. maí 2008

Það er nokkuð ljóst að RÚV stendur BBC aftar að mörgu leyti. Ég skil ekki hvers vegna RÚV getur ekki haft texta með útsendingunni á Eurovision. Ég meina, ef þetta er peninga-issue þá væri ég alveg tilbúin í að fórna herra Sigmari og uppihaldinu á honum úti í Eurovisionlandi ef ég fengi textann á lögunum í staðinn og svona. Það er algjör snilld að geta skilið um hvað lag á babblísku fjallar. Gerir áhorfið skemmtilegra.

Og þar sem allt sem sagt er á milli er nú textað í beinni þá gefur það færi á bráðskemmtilegum mistökum í þýðingum að hætti Thailenskra sjóræningjaDVD framleiðenda.

"Norway is through" breyttist til dæmis í "Norway is the loo", mér og mínum til ómældrar kátínu.

13. maí 2008

Bróðir minn var orðinn hátt í.. hmm, allavega 5-7 ára áður en hann fattaði hvernig ég "galdraði" smápeninga og aðra hluti á bak við eyrað á honum.

Stelpan er ekki orðið tveggja ára og hún er strax farin að sjá í gegnum "galdrana" mína. Fyrr má nú vera athyglisgáfan...

7. maí 2008

Hvar er eiginlega snooze takkinn á svona litlum börnum? Mikið væri ég fegin að finna hann...


4. maí 2008

Dóttir mín er hreinn snillingur í vöruskiptum. Hún verður vonandi ekki verðbréfamiðlari, ég vonast auðvitað til þess að geta átt við hana skemmtileg samtöl í framtíðinni.
En eftir stendur að hún er snillingur í vöruskiptum. Hún þekkir gildi þess að skipta á vöru fyrir þjónustu og öfugt. Hún á líka merkilega auðvelt með að gefa eftir þegar aðrir krakkar ásælast dótið hennar, sérstaklega þegar hún eygir von á að hrifsa flott, ókunnugt dót frá þeim í staðinn. En hún er samt tilbúin til þess að verja eigur sínar ef henni líst ekki á skiptin. Og eins og þeir bestu, þá kann hún að ganga frá góðu boði til þess að hræra í þeim sem býður, sem er ósjaldan móðir hennar.


30. apríl 2008

Skilgreining grunnskólastelpu (sirka 10-12 ára myndi ég giska) á perra: "Hann horfði á brjóstin á Birgittu í alveg eina mínútu eða eitthvað!!!".

27. apríl 2008

Það að hafa kynnst grunnhugtökum úr sálfræðinni hefur eyðilagt furðu mikið af kvikmyndum og sjónvarpsþáttum fyrir mér. Sérstaklega ef einhver karakterinn á að vera geðklofi... eins og í frekar þunnri og fyrirsjáanlegri hryllingsmynd sem ég sá með öðru auganu í gær.


25. apríl 2008

Krúpphóstinn lét kræla á sér aftur. Flókið nafn á hálsbólgu ungbarna. Eftir því sem ég fæ best skilið, þá þjást börn af krúpphósta vegna þess að þau eru ekki fær um að ræskja sig til þess að losa um slím sem myndast út af hálsbólgunni. Þess vegna heyrast ógnvænlegt hljóð þegar þau anda og stöku sinnum enn ógnvænlegri hósti sem fær alla viðstadda til að óttast um að barnið nái ekki andanum á ný. Mér skilst að þetta sé samt ekki mjög hættulegt. Meira svona taugastrekkjandi fyrir aðstandendur. En ég er svo sem enginn læknir, svo að kannski hef ég misskilið þetta allt saman stórlega.

Hún hefur tekið hálsbólgunni með mestu rósemd. Þessi hálsbólga er reyndar mikið vægari en sú sem hún fékk fyrir áramót, held ég, sem betur fer. Eða, það er að segja ef hún versnar ekki upp úr þessu. Hún var alveg sæmilega góð í dag og hefur ekkert vaknað upp í hóstakasti í kvöld, svo að ég vona að hún verði orðin hraust aftur eftir helgina.


21. apríl 2008

Talandi um morðingja... Ef ég hyggði á feril sem morðingi myndi ég byrja á því að drepa Miss Maple, Sherlock Holmes, Hercule Poirot, "Murder, She Wrote" konuna, eða hverja þá sjálfskipuðu leynilöggu sem byggi í nálægð við mig.
Sérstaklega ef viðkomandi væri augljóslega að rannsaka málið, ganga manna á milli og spyrja óþægilegra spurninga.


26. mars 2008

Ég held það segi allt sem segja þarf um ævintýri (og þar með þjóðsagnafræði) að verðlaunahátíð hryllingsmynda skuli líka hylla ævintýri og vísindaskáldskap.

Annars finnst mér svolítið fyndið að sjá fólk sem rembist hjákátlega mikið við að vera töff og "evol" ("The movie you would KILL to see" og "Warning, there will be blood and gore bleble") skuli skríkja eins og smástelpur við að sjá brot úr barnamyndum á borð við Harry Potter og Pirates of the Caribbean. Eða nördaþáttum á borð við Star Trek.

Til að fyrirbyggja misskilning vil ég taka fram að mér finnst Harry Potter ágætur. Og líka Star Trek. En ég stend ekki upp á sviði (eða skríki eins og smástelpa útí sal) og þykist vera eitthvað elítu ofur "evol", svo einstök að það finnist enginn með sjúkari hugsunarhátt, svo rosalega "evol" að ég myndi hafa gaman af því að drepa mann og annan. Það er eitt að horfa á hryllingsmyndir og annað að vera veruleikafirrtur fjöldamorðingi.

En hér er aðallega bara við skipuleggjendur hátíðarinnar að sakast... og kannski nokkra kjána sem komu fram.


24. mars 2008

Ég held ég viti hvernig uppvakningum líður.

Örlög Þyrnirósar voru ekkert svo slæm. Ég meina... að fá að sofa í heila öld? Og öll fjölskyldan svaf bara memm. Ekki svo galið, sko...


7. mars 2008

Stundum finnst mér ógeðslega gaman að reikna, og get eiginlega ekki hætt. Örugglega eitthvað skylt því að mér fannst viðskiptahagfræði skemmtileg í framhaldsskóla...

Ég asnaðist á heimasíðu Play.com í vikunni þar sem ég sá gylliboð um fullt fullt af DVD myndum á aðeins 5 pund hver. Að gefnu tilefni er gott að minnast á það að 5 pund eru ekki bara 500 kall, heldur sirka 685 krónur. Voru bara 600 krónur áður en Krónan tók dýfu.

Hvað með það, 685 er samt lygilega ódýrt, sérstaklega þar sem Play.com býður upp á ókeypis sendingarkostnað. Sem sagt. Bretar kaupa þessar DVD myndir á 5 pund heim í hús, enginn sendingarkostnaður.

Ég sá þarna eina mynd sem mig langar í, og þurfti þá auðvitað að "gramsa" til að gá hvort ég sæi fleiri. Það var fátt um góða kosti þarna. Einu góðu myndirnar sem ég sá var ég annað hvort búin að sjá trilljón sinnum eða á fyrir. Sá samt 2-3 sem ég gæti hugsað mér að kaupa bara svona upp á djókið. Ákvað að finna upplýsingar um tollkostnaðinn til að gá hvort það væri þess virði að panta bara þessa einu mynd.

Ég fann reiknivél Tollstjóra. Verð + Tollur + Vsk = 939 kr. Aaaah, ekki svo mikið ódýrara heldur en í tvennutilboði BT eða Elkó. En jú ok, kannski ekki svo slæmt.

Neinei, þá má ekki gleyma því að maður þarf að greiða 350 krónur sérstaklega fyrir hvern pakka hjá Tollstjóra fyrir það eitt að hann tollafgreiði vöruna. 939 krónur eru þannig orðnar 1289 krónur. Og eftir allt gúglið komst ég að því að það gagnast ekkert að kaupa margar myndir frá Play.com til að deila 350 krónunum niður á nokkrar myndir, því sagan segir að Play.com sendi hverja og eina mynd í sérpakkningu. Fyrir mynd sem kostar 685 (með ókeypis sendingarkostnaði) þarf maður sem sagt að greiða 604 krónur til Tollstjóra. Hressandi.

En talandi um vefkaup. Mér finnst alltaf jafn fyndið að sjá auglýsingu frá Hans Petersen um tilboð á framköllun af digital myndum. Er það ekki hvað, 20, eða 24 krónur per mynd? Heildarverð per mynd, með sendingarkostnaði og tollgjöldum, þegar ég framkalla hjá Bonusprint kostar það mig held ég eitthvað um 14 krónur (miðað við dýfingarkrónu... var ódýrara áður...).

4. mars 2008

Dánartilkynning?

Í morgun gerði ég riiiiisastóran snjókall. Alveg riiiisastóran. Og líka snjókastala, fegurri en nokkuð sem þið hafið augum litið.

Myndavélin nennti ekki út í kuldann með mér og litla stjórnandanum mínum.

Svo kom rigning.

Snjókallinn var orðin ansi niðurlútur um fjögurleytið. Gamall og lúinn.

Ég býst ekki við því að ofursnjóhúsið sem foreldrar mínir gerðu um helgina tóri mikið lengur.


Orðabókaruppfærsla:
ABBA = hoppa
geh= skyr
dæj, dæj, dæj= góðan daginn, daginn, daginn (sbr. fingralagið)

29. febrúar 2008

Ahemm. Það er víst kominn tími á að hreinsa burt ryk og köngulóavefi af þessari síðu...

Tíminn hreinlega flýgur frá manni þessa mánuðina. Ég er til dæmis að læra nýtt tungumál. Það er ekki mjög flókið, en ég ímynda mér að hver sem þekki ekki til gæti átt í erfiðleikum með að skilja það án hjálpar orðabókar. Verst bara að engin orðabók er til fyrir þetta sérstæða tungumál. Sum orð eru samt auðskildari en önnur, svona eins og gengur og gerist. Hérna eru þau helstu

nuuu - snuð
ikh - fiskur
áv - hár
nee - nef
namminamm - matur & munnur
lóló - róló
dídó - strætó
babba - labba
ljóóó - ljós
lóóó - stór
húa - húfa
aua - auga
eyja - eyra
dááá - tá
hæ - hæ

abbídaa - allt búið

Þetta minnir mig svolítið á færeysku að því leyti að þetta hljómar nánast eins og íslenska en samt ekki alveg.

10. febrúar 2008

Breskar sjónvarpsstöðvar eru gjarnar á að sýna leikjaþætti sem ganga út á að keppendur reyni að ljúga að náunganum í von um að snapa sér inn smáaur. Ok. Stundum er það svolítið mikið meira en smáaur. Það eru meira að segja til barnaþættir sem ganga út á þetta sama, ljúga, svíkja, pretta. Sumir siðferðislega skiljanlegir, aðrir síður, en flestir furðuskemmtilegir áhorfs.

Einn af þessum leikjaþáttum (þ.e. þessum fullorðins) snýst um að fjórir aðilar fái fjórar upphæðir hver. Tvær sýnilegar, tvær aðeins ætlaðar augum keppandans. Svo lýgur fólk villt og galið um upphæðirnar. Til þess að komast í lokalotuna. Og þar lýgur fólk ennþá meira. Og loksins, þegar tveir einstaklingar standa eftir með lokaupphæð (sem er misjöfn í hverjum þætti eftir því hversu heppnir og svikulir keppendur voru) veltur lokaniðurstaðan á því hversu duglegt fólk er að ljúga.

Og það er ótrúlegt hvað fólk er duglegt að ljúga blááákalt. Það er oft svimandi erfitt að sjá hver er að segja sannleikann. Og þar sem fólk er svona duglegt að ljúga fyrir peninga þá verð ég að draga þá ályktun að það hljóti að vera hrein hörmung að sitja í bandarískum kviðdómi eða vera löggumanni að rannsaka glæpi...

21. janúar 2008

Ef það er eitthvað sorglegra en að missa samband við góða vini þá hlýtur það að vera að halda sambandi við ástkæran aðila sem er bara kominn á einhverja allt aðra bylgjulengd.

En það kemur alltaf að því að maður þurfi að viðurkenna að... þú veist... ég fór þessa leið og hann hina. Er það ekki??

Stundum finnst mér eins og ég gæti allt eins hent símanum mínum. Samband okkar er bara... ekki að virka lengur. Við vorum einu sinni óaðskiljanleg. Hann svaf meira að segja stundum við hliðina á mér. En núna er ekkert pláss þar fyrir hann lengur. "The other woman" hefur tekið sér bólfestu í svefnherbergi mínu og ég get ómögulega fengið af mér að gefa honum færi á að trufla svefn hennar með því að gefa frá sér óviðeigandi og truflandi hljóð í tíma og ótíma. Svo þegar ég loksins man eftir því að kíkja á einmana, yfirgefinn símann, þá er yfirleitt ekki hentugur tími til að svara óafgreiddum hringingum, eða smáskilaboðum. Klukkan er annað hvort langt gengin á nóttu, eða hin konan sú arna heimtar athygli, eða bara, hitt og þetta. Og loksins þegar tíminn er hentugur, þá er hugur minn kominn eitthvert annað. Svo að sumum hringinum/skilaboðum er aldrei svarað.

Já. Þetta samband er orðið frekar aumt. En stundum. Stundum slysast ég til að vera með símann nálægt mér þegar hann reynir að ná sambandi við mig. Og þá er eins og allt annað gleymist. Eins og allur tíminn sem fór í þykkildisþögn og fjarrænt augnaráð hreinlega gufi upp og við erum náin sem aldrei fyrr. Og einstaka sinnum er hann sem vin í eyðimörkinni, vegna þess að þegar ég þarf nauðsynlega á honum að halda getur hann reynst mér stoð og stytta, þrátt fyrir allt saman.

Ætli það líði ekki nokkur tími þar til ég gef hann upp á bátinn. Það er líka ágætt að hafa eitt stykki vekjaraklukku til vara, ef hin skyldi ekki duga sem skyldi.

Ég vil nota tækifærið til að biðjast "opinberlega" afsökunar á símhringingum og smáskilaboðum sem hefur hingað til ekki verið svarað sem og þeirra sem mun óumflýjanlega ekki vera svarað í framtíðinni.

----------------------------

Í öðrum fréttum, þá er barnið sem færir til húsgögn farið að opna baðherbergishurðina upp á eigin spýtur. Það er einnig farið að segja "Eydíííhh" út í loftið án þess að hafa minnstu hugmynd hvað það þýðir. Það veit einungis að frændi sinn segir þetta orð alloft, og vill ekki vera síðri en hann að gæfu og gjörvugleika. Það er ekki farið að segja eigið nafn, þótt nöfnin tvö teljist almennt vera lík.


15. janúar 2008

Það er alveg hrikalega niðurdrepandi að skoða leikskóla á netinu. Eða allavega finnst mér það.

Mér finnst það nefnilega frekar leiðinleg tilhugsun að senda barnið mitt eitthvert þar sem ókunnugt fólk hefur færi á að eyðileggja hana. Ég meina, hugsa sér ef starfsmenn leikskólans skyldu vera ofsafeminístur á sterum, pólitískt þenkjandi, fótboltabullur eða, það sem verst hlýtur að teljast, kristinnar trúar? Eða fólk sem getur horft á Kastljós án þess að fá kjánahroll yfir lélegum starfsaðferðum þáttagerðaraðilanna. Mér finnst nógu slæmt að vita að flestir starfsmennirnir (eða í það minnsta af þeim sem hafa farið í leikskólakennaranámið) aðhyllast kenningar sem eru úr lausu lofti gripnar og eiga ekki við nein rök að styðjast, vísindalega... já, það var kannski ekki of sniðugt að fara í kennslufræði, svona upp á geðheilsuna að gera. Hamingjan fylgir "heimskingjanum".

Það hjálpar heldur ekki til að leikskólarnir næst mér fara a.m.k. einu sinni að vetri í heimsókn í kirkjuna.

Þegar ég lá andvaka um daginn datt mér meira að segja í hug hvort ég ætti kannski að vinna á leikskóla svo ég gæti fylgst með barninu. En það hlýtur að hafa verið óráð vegna svefnleysis af því að svo mundi ég að þess væri örugglega krafist í starfslýsingunni að maður sinni hinum börnunum líka.

Ég væri alveg til í að vinna í lottó, svo ég gæti látið það eftir mér að vera einsmannsleiksskóli fyrir barnið mitt. Ég sé það alveg fyrir mér. Föndra, leira, perla, fingramála, kubba, baka, vettvangsferðir, o.s.frv. En þangað til það gerist, þá væri afskaplega vel þegið ef einhver gæti í það minnsta stofnað leikskóla fyrir fólk utan trúfélaga. Helst núna takk. Og byggja hann rétt hjá heimilinu mínu. Og hví ekki að stöðva öll stríð í heiminum, svona í leiðinni?


P.S. Af hverju er sagnorðið "að vana" það sama og aukaföllin af nafnorðinu "vani"? Nei bara. Það er greinilega ekki hollt fyrir heilann að eiga erfitt með að sofna.


14. janúar 2008

Myndin The Wicker Man frá 1973 á að heita hryllingsmynd. Hún fjallar um bældan lögreglumann sem aðhyllist kristni og er sendur til skoskrar eyju til að rannsaka hvarf ungrar stúlku. Honum hryllir við heiðnum siðum og opnu viðhorfi til kynferðislegra málefna. Enn sem komið er af áhorfi mínu (sem getur ekki talist mikið meira en "horft með öðru auga á eitt og eitt atriði") hefur hryllingurinn hins vegar að mínu mati snúist um ofsafengin viðbrögð lögreglumannsins sem heimtar það að fólkið á eyjunni hegði sér "kristilega". Hann mun svo væntanlega verða vitni að því að eyjabúar gangi langt yfir strikið og fremji einhvern viðbjóðslegan glæp. Svona til að réttlæta að kristni sé best í heimi...

Mér skilst að þetta sé költ mynd í breskri kvikmyndasögu. Ætli myndin hafi hjálpað til við að ýta undir hugmyndina um yfirburði Breta yfir Skotum? Og hvað með Skota? Ætli einhverjir þeirra Skota sem sáu myndina í sinni tíð hafi blöskrað það hvernig þeir eru gerðir að siðspilltum villimönnum í myndinni? Eða hugsuðu þeir bara að þeir væru hjartanlega sammála löggumanni og þetta væri réttmæt lýsing á Skotum sem búa á litlum eyjum en ekki þeirri einu sönnu stóru eyju Stóra-Bretlands?

Óh, allir hlutirnir sem hægt væri að rannsaka ef maður væri sérvitur milljarðamæringur... Óh, allar spurningarnar sem detta í kollinn á manni og eru vitagagnslausar, svo ekki sé talað um kjánalegar.

P.S. Þetta hlýtur að vera alvöru hryllingsmynd, því Christopher Lee leikur í henni...


1. janúar 2008

Ég hefði ekkert á móti því ef það væri alltaf svona vont veður á gamlárskvöld. Það hentar mér ágætlega að sem fæstar flugeldasprengjur ónáði svefnró hnátunnar.

Eitthvað svaf ég samt heldur illa og það var kveikt á sjónvarpinu þegar ég lagði mig áðan. Kveikt á annál eða einhverjum fjanda og mig dreymdi afar furðulega drauma þar sem pólitíkusar voru alltaf að skipta sér af framvindu mála....

Svo gerist skiljanlega ekki oft hjá mér, enda er ég með bráðaofnæmi fyrir pólitík.


26. des 2007

Ég hélt að það væri ekki hægt að vera með gubbupest, stíflað nef OG vera á blæðingum allt á sama tíma. Og það á aðfangadagskvöld OG jóladag. Og annan í jólum.

Það er þetta sem ég kann ekki við.


13. des 2007

Ef ég hefði verið borgarstjóri Reykjavíkur síðustu áratugina þá væru allar götur skipulagðar þannig að götuljósin stafi nafnið á hverfinu þegar horft er á þau úr lofti.

Nei bara. Láta ykkur vita hvað þið eruð að missa af...


6. des 2007

Ég var að hlusta á jólalög á barnarásinni með hnátunni minni áðan.

Ef eitthvað mannsbarn á Íslandi trúir því virkilega að Jesú hafi fæðst til að "gefa okkur jólin" þá eru grunnskólakennarar að missa allt niður um sig...

Ég leyfi mér að efast um menntun þeirra sem semja svona jólalög.


28. nóv 2007

Manstu gamla daga?

Hefurðu einhvern tímann lent í því að gleyma PIN númerinu ákkúrat þegar þú þarft á því hvað mest að halda?

Það að slá inn PIN númerið er svo mikill vani hjá mér, að ef ég svo mikið sem hugsa "Hvað er aftur PIN númerið mitt?" þá gleymi ég því um leið. Þetta er sem sagt einn af þessum fáu hlutum sem ég þarf að gera án þess að hugsa nokkuð um það fyrst.

Annars, þá var síðasta kennslustund annarinnar í dag. Víííj. Nú er bara heimaprófið eftir. Verst að mér er fyrirskipað að búa til mína eigin spurningu....


26. nóv 2007

Ég er tvisvar búin að fá tölvupóst um "Stærsta háskólateiti Íslandssögunnar". Í hvorugt skiptið er verið að bjóða mér, nemanda við Háskóla Íslands, að mæta sem gestur. Í bæði skiptin var reynt að selja mér þá hugmynd að það sé svo *gaman* að vera sjálfboðaliði og þjóna hinum háttvirtu gestum. 14000 manns, já, þið lásuð rétt, FJÓRTÁN ÞÚSUND MANNS, er boðið. En ekki mér. Nemanda við Háskóla Íslands. Sem hefur greitt námsgjöld við Háskólann síðustu ár og hef þannig hugsanlega staðið að einhverju leyti að baki þessari byggingavinnu, ásamt ótal öðrum nemendum. Ég veit auðvitað ekki hvort öðrum nemendum hefur verið boðið, en miðað við að okkur öllum á hi-nem@hi.is sé send tilkynning um þetta "glæsilega þrælkunartilboð" þá býst ég við að svo sé ekki. Við nemendur erum greinilega ekki meira virði en það að okkur er ekki boðið í stærsta háskólateiti íslandssögunnar nema hugsanlega sem vinnuhjú. Ég skil þetta vel, enda erfitt að velja og hafna þegar valið er í teiti og gestalistinn er alveg rosalega fámennur í þetta skiptið, bara fjórtán þúsund manns sem mega mæta.

Ekki svo að skilja að mig hefði langað þótt ég hefði fengið boð. Ég hef séð nýju bygginguna nógu oft fyrir minn smekk og mun eflaust sjá meira af henni á næstu önn.

Ef ég á að vera alveg hreinskilin, þá finnst mér þetta reyndar vera alveg sjúklega góð hugmynd. Og fyndin í þokkabót. Það er algjör snilld að detta það í hug að virkja nemendur sem vinnuafl og um leið geta boðið þeim nemendum sem vilja upp á að mæta í partíið. Það eru pottþétt margir sem hafa þegar tekið tekið þessu boði fegins hendi. Mér leikur samt forvitni á að vita hversu margir hafa hugsanlega tekið þessu illa...


22. nóv 2007

Mér finnst gaman að taka myndir af fólki úti á götu. Fólki sem ég þekki ekki baun og langar ekkert til að þekkja. Ég skildi aldrei almennilega af hverju mér finnst þetta gaman. Fyrir mér var þetta bara alltaf einhver ósjálfráð hegðun.

En svo sá ég heimildaþátt um ljósmyndir/ljósmyndara um daginn. Margir af ljósmyndurnum í myndinni sögðu frá því eins og ekkert væri sjálfsagðara að þeir stunduðu það að ganga um götur og taka myndir af ókunnugum. Eitthvað tengt því hvað það er mikið líf á götunum og hversu gaman það er að reyna að ná myndum af fólki þegar það er ekki meðvitað um það.

Þetta er kannski bara einn af þessum furðulegu mannlegu breyskleikum, svona eins og að finnast gaman að kíkja inn í heimili fólks þegar gengið er fram hjá húsum eða gúgla fólk af einskærri forvitni.





5. nóv 2007

Börnin læra það sem fyrir þeim er haft

Já, þetta eru engin ný fræði. En það kom mér á óvart um daginn hvað Jódís er orðin fljót að herma og taka upp nýja siði. Ég var að hella vatni í glasið hennar (gamall peli úr plasti) og fannst ég hafa hellt fullmiklu vatni fyrir litar hendur sem vilja helst hella því öllu á gólfið, svo að ég hellti úr því yfir í mitt glas. Áður en ég veit af er hún byrjuð að hella úr glasinu sínu yfir í mitt á fullu líkt og lífið lægi við. Seinna gerðist það sama og ég ákvað að drekka sopa úr glasinu hennar til að minnka vatnsmagnið og þótt hún drekki alltaf með röri úr þessu ákveðna glasi ákvað hún að drekka "af stút" og gekk ekki betur en svo að allt vatnið sullaðist yfir hana.

Já, maður þarf greinilega að passa hvað maður gerir fyrir framan hana.




5. nóv 2007

Vííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííjjjjj!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Bara mánuður í jólafrí. :D




24. okt 2007

Ég er orðin svo þreytt á æstum og málefnaheftum spyrlum/þáttastjórnendum.

Mér finnst að það ætti að reka alla sem æsa sig við viðmælendur sína eða ráðast á þá með ómálefnalegum spurningum sem eru til þess gerðar að snúa út úr eða sýna það að spyrillinn hefur engan skilning á málefninu. Og hananú.

Eins og það sé ekki nóg að svona viðtöl eru viðbjóðslega leiðinleg, þá virðast þau virka sem banal áróður á lýðinn sem gleypir við þessu án nokkurrar gagnrýni.

Ef ég býð mig einhvern tímann fram í svona plat framboð eins og syndaaflátssölu-listamaðurinn sem bauð sig fram til borgarstjóra, þá mun ég hafa það á stefnuskrá minni að útrýma þessum dreggjum samfélagsins úr sjónvarpi, útvarpi og fréttablöðum. Þessir einstaklingar verða þá að sætta sig við að standa á götuhornum með mótmælendaskilti, eða, úff, það sem verra er, úthella úr skálum ofurreiði sinnar yfir saklausa netnotendur.


10. okt 2007

Nú man ég hvað það var sem ég ætlaði að segja um svefnleysi.

Eftir að Jódís fæddist hef ég verið því sem næst blessunarlega laus við það að liggja andvaka á næturnar og ná ekki að sofna. Enda alltaf vansvefta.
Undanfarið hefur þetta leiðigjarna ástand þó látið bæra eilítið oftar á sér. Ekki mikið. En örlítið þó. Og það kemur mér satt að segja á óvart, því þótt ég sé farin að sofa dável svona öllu jöfnu þá vantar nú ennþá nokkuð upp í eðlilegt svefmynstur.

Um daginn, þegar eitt slíkt ástand ákvað að ofsækja mig, varð mér hugsað til þess hversu ótrúlega miklu mannskepnan kæmi í verk (eða í það minnsta ég prívat og persónulega) ef búið væri að finna upp tölvu sem stjórnast af hugsanalestri, sérstaklega þegar maður liggur svona andvaka. Nennir ekki á fætur að fara að gera allt það sem streymir um kollinn á ofsafengnum hraða. En er oft og iðullega búinn að gleyma stórum hluta af þessum hugsunum þegar dagur loksins sækir mann heim.

Já, ég væri alveg til í svona hugsanalesturstölvu Mig grunar samt að þráðlaust net væri ekki rétta leiðin til framkvæmdar á svona apparötum.



9. okt 2007

Ég hef undanfarið verið að lesa bók með dagbókarbrotum Íslendinga fyrir námið.
Hann er sláandi, þessi viðvarandi svefnskortur. Af bókinni að dæma mætti halda að stór hluti þjóðarinnar fái sjaldnast góðan nætursvefn.

Minnir mig á rannsóknir sem enginn veit nánari deili á en margur hefur gaman af að vísa í; að Íslendingar vinni manna mest en komi minnstu í verk. Þarna væri hæglega hægt að koma með ómálefnalega og órökstudda orsakatengingu.
Ég ætla hins vegar að hlífa ykkur við því og láta gott heita í bili.

7. október 2007
Nýtt útlit já. Verður vonandi ekki árlegur vani hjá mér að flikka upp á síðuna, fer allt of mikill tími í svona rugl. Samt gaman.
En já.
Gömul skrif fá að fylgja með yfir í nýja lúkkið. Langtum auðveldara að yfirfæra orðið heldur en ljósið.

Ég veit ekki enn hvort þetta þýði að ég verði duglegri að setja inn efni á síðuna. Það verður bara að koma í ljós með tíð og tíma.


OG HÉR KEMUR ÞETTA GAMLA....

22. september 2007
Jódís stækkar og dafnar. Með öðrum orðum, þá krefst hún stöðugt meiri athygli. Með enn öðrum orðum, þá er því sem næst ómögulegt að reyna að læra á meðan hún er nálægt.

Móðir mín blessunin hafði einmitt sagt þetta þegar hún sannfærði mig um að rumpa kennsluréttindunum af síðasta vetur. Þótt það hafi verið erfitt á köflum þá var skiljanlega auðveldara að lesa eða læra með hana í fanginu þegar hún gat sig varla hreyft heldur en núna þegar hún er lifandi raketta.

Ekki það að ég sé að kvarta, hún er mikið skemmtilegri félagsskapur en skólabækurnar. Ég mætti samt alveg vera duglegri að lesa.


10. september 2007
Konan sem "rak sig í hurð"
Við vitum öll hvað það þýðir þegar kona segist reka sig í hurð. Dramatísku kvikmyndirnar og krassandi bækurnar segja okkur að það sé yfirskin konu sem þorir ekki að segja frá því að hún sé lúbarin heima fyrir.

Mér tókst að hlaupa á hurð í gær. Skarta þó ekki myndarlegu glóðarauga heldur örlítilli (og sársaukafullri) kúlu fyrir miðju enni til viðbótar við hálfa rauða rönd af Harry Potter öri. Þetta gerðist nokkrum tímum eftir að okkur pabba tókst í sameiningu að mölbrjóta uppáhalds bollann minn.

Sama dag tókst mér bæði að reka fótinn í (að ofanverðu, rétt fyrir neðan tærnar) og að vera fyrir með fótinn þegar Jódís henti dóti í hann á nákvæmlega sama stað (óviljandi, að sjálfsögðu) á meðan ég skipti á henni. Skarta þar aumum marbletti.

Í dag skallaði ég svo gólfið þegar ég var að fíflast við Jódísi. Sem betur fer ekki á sama svæðið og litla kúlan mín er, það hefði verið virkilega sárt.

Ég legg því hér með inn formlega beiðni til stjórnenda alheimsins um að fara mjúkum höndum um mig næstu vikur. Mér finnst þetta orðið nóg í bili.



18. júlí 2007
Og hringavitleysan heldur áfram.
Í gegnum námsbrjálæðið síðasta vetur lofaði ég sjálfri mér statt og stöðugt að taka mér 2-3 vikna frí að námi loknu. Bara til að slaka á og njóta þess að snúllast í kringum Jódísi. Ég sá fyrir mér í hillingum að vinna hálft starf einhvers staðar í sumar. Einhvern veginn endaði ég með viku í frí og fullt starf yfir sumarið. En ég hugsaði með mér, ojæja, ég verð ekki í jafn stífri keyrslu í náminu í vetur og get slakað smá á í staðinn þegar haustar. .... Núna er ég hins vegar að velta fyrir mér hvort ég eigi að taka tilboði um að vinna eitthvað með skólanum í vetur.

Ég er farin að halda að ég hafi týnt pásutakkanum.

18. júlí 2007
...og þá var sumarið búið
Já, ég ætlaði að setja fullt af myndum hér inn. Í þetta sinn var það ekki alfarið mér að kenna, vefsvæðið sem ég nota var eitthvað í rugli og ég komst ekki í fælana til þess að setja þær inn. Nú er klukkan hins vegar allt of margt, klukkan tifar og nálgast miðnætti og ég ætlaði að vera löngu sofnuð. Þar til næst:


1. júlí 2007
More to come...
Svona þegar ég nenni næst að setjast við tölvuna í góðu tómi. En þangað til:


27. júní 2007
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni
Jáá!! Nú man ég það. Sko. Þegar Jódís er ekki að ímynda sér að hún sé Hiro, þá skemmtir hún sér við að herma eftir Gene Simmons. Já, jafnvel þótt hún hafi aldrei séð Gene kallinn þá hefur hún tekið upp á því nýlega að reka tunguna út úr sér eins langt og hún getur og beygir hana og sveigir eins og... já.. eins og gítarleikari í frægri rokkhljómsveit. Eða var hann bassaleikari? Potato, potata. Þarna sjáið þið. Þetta er að sjálfsögðu BEIN afleiðing af grímubúningnum mínum forðum daga, þegar ég fór í grímupartí, ólétt konan, uppstríluð sem Gene væri. Svona eins og það að drekka úr sprungnum bolla leiðir af sér börn með skarð í vör. Hérna er klárlega tenging. ;)


26. júní 2007
Har du penge?
Í kjölfar diplóma"útskriftarinnar" hafa bankarnir ranglega dregið þá ályktun að ég hafi lokið háskólanáminu. Þar af leiðandi hafa þeir verið að keppast um að senda mér gylliboð um hvað það sé frábært að vera með launareikning hjá þeim. Það eina sem bankinn sem ég er með launareikninginn minn hjá hefur gert er að senda mér kreditkort með 10 ára gamalli mynd af mér á auk gylliboðs um að ég fái frítt í sund. Og það gera þeir reyndar ekki af því að ég kláraði diplómað heldur af því að þeir eru hættir með Svarta kortið. Það hljómar ekkert sérlega rausnarlega að fá frítt í sund, en þau ykkar sem hafa heimsótt sundlaugar Reykjavíkurborgar nýlega eruð væntanlega með það á hreinu að sundferð er viðbjóðslega dýr. Já, sundferð er orðin skuggalega nálægt hálfvirði af einni bíóferð og bíómiðarnir fást nú aldeilis ekki gefins. Hvað kostaði annars í sund fyrir 10 árum? Eða svona sirka um það leyti þegar það kostaði 450 krónur í bíó? Var það ekki bara 50 krónur? 100 krónur?

Já, ég geri mér grein fyrir því að þessi umræða gæti allt eins hafa komið út úr munni Abraham Simpson, en ég stóðst ekki freistinguna :) Það var eitthvað ógó sætt sem ég ætlaði að skrifa um Jódísi, var meira að segja búin að hugsa um það oftar en einu sinni, en um leið og ég settist niður fyrir framan tölvuna til að pikka það inn gat ég ómögulega munað það.

P.S. Það hringdi fólk úr einum bankanum um daginn til að bjóða mér "tilboð í bankaviðskipti". Í fyrra skiptið var það æst kona sem vildi ekki hlusta þegar ég sagði að ég kæmist örugglega ekki til þeirra í viðtal og í seinna skiptið var það öllu rólegri karl. Ég ákvað því að spyrja hvað í ósköpunum þetta gekk allt út á en það skipti ekki máli hversu oft ég spurði "og hvað er eiginlega tilboð í bankaviðskipti???" og jafnvel "hvað eru bankaviðskipti???", ekki uppskar ég nein svör og það var klárt mál að greyið kallinn var orðinn frekar pirraður á því að þetta væri ekki almenn vitneskja. ...Já. Menn segja að hefndin sé sæt.

15. júní 2007
Úps
Já það er orðið svolítið langt síðan ég uppfærði nokkuð hérna.
Hún Jódís mín er orðin svo mikið sem 9 mánaða. Við fórum saman í sund á "afmælisdeginum".
Og þrátt fyrir að Jódís hafi aldrei séð einn einasta þátt af Heroes þá virðist hún halda að hún sé Hiro, því hún á það til að horfa á mig, kreista augun saman á svipaðan hátt og hann, opna þau aftur og brosa/hlæja. Það er kannski bara enn ein útgáfan af feluleiknum sem hún er ólýsanlega hrifin af, hver veit.
Fleira held ég að það sé ekki í bili. Ég mætti nú alveg setja upp nokkrar myndir, held það sé dágóður tími síðan ég gerði það... eeeen, það er meira freistandi að fara að prjóna aðeins fyrir svefninn. Já, talandi um prjónaskap, glöggir lesendur tóku kannski eftir gula og bláa kjólnum á einhverjum af myndunum sem ég setti síðast inn. Kjólinn sem ég "kláraði" loksins. Á sko eftir að ganga frá smá endum og svoleiðis... en hafði ekki eirð til þess að klára það smotterí og byrjaði á nýjum, haha. Já. Svona er ég orðin gömul og grá, sit á föstudagskvöldum og skemmti mér við það að prjóna :)

Vona að þið séuð að njóta sumarbirtunnar, blessaðar sumarsólstöður fara að nálgast.

23. maí 2007
Jaá, eitthvað rámar mig í að þekkja þig... nafnið var Eydís, ekki satt?
Baldur og sú iðja goðanna að henda hlutum í hann hefur verið að hringlast í kollinum á mér undanfarið, en núna er því sem betur fer lokið, síðasta kynningin á þessari önn loksins búin (weehaa) og ólíkt síðustu kvöldmáltíðinni er þetta fyrirboði betri tíma. Ólíkt Baldri mun mér vera hleypt aftur í samfélag manna og nú mega félagsleg samskipti fara að aukast.

18. maí 2007
Prime time tellie?
Og meira af raunveruleikasjónvarpi. Ég botna ekkert í umræðu síðustu daga um stjórnarflokka þetta og stjórnarflokka hitt. En. Ég hef tekið eftir því að það er lítill munur á íslenskum stjórnmálaflokkum og siðlausum þátttakendum í Sörvævor. Ég get hins vegar ekki gert upp við mig hvort mér finnst vera orðið þreyttara sjónvarpsefni... nema hvoru tveggja sé.

15. maí 2007
Vilt þú taka við þessari rós...?
Jæja. Þá er ég komin með vinnu í sumar. Ég fór í heil þrjú atvinnuviðtöl fyrir eitt og sama starfið. Þetta var farið að verða svona svolítið eins og ANTM eða Bachelor. Mínus rósir og geðbiluð súrsæt módeldíva.
En núna er það lærispæri. Bara nokkrir dagar í viðbót....

12. maí 2007
Kosningaóþol - uggh
Svindl. Úkraína átti að vinna vegna þess að ég var að svæfa Jódísi þegar Úkarína var á sviðinu og missti af því! Ég sem var búin að hlakka til að sjá geimverurnar í fullum skrúða á sviðinu.

Ég var í prófi í dag. Núna er kennsluréttindanáminu loksins lokið!!!!!!! En á mánudaginn byrjar tveggja vikna ofvirkniáfangi. Þið megið sem sagt búast við því að heyra ekki mikið frá mér fyrr en því er lokið. En já, ég var í prófi í dag. Það byrjaði ekki vel, ég var of sein af stað og var að tölta í átt að Aðalbyggingunni, með lykla í úlpuvasanum, háskólaskírteinið í annarri hendinni og alzheimermiða í hinni (með prófnúmerinu mínu á og númerinu á prófstofunni) þegar ég uppgötva mér til mikils hryllings að ég var ekki með skriffæri. Ógn og pína. Ég trimma inn ganginn á Aðalbyggingunni í von um að hægt væri að finna einhvern penna fyrir framan nemendaskráningu en í staðinn sá ég opið inn á skrifstofu. Þar fyrir innan sat eitthvað karlgrey. Ég ruddist inn og spurði óðamála hvort hann gæti ekki látið mig fá penna, ég væri nefnilega of sein í próf og hefði gleymt penna. Karlgreyið varð við bóninni. Ég læddist (öllu tígulegri) að skrifstofunni eftir prófið og ætlaði að skila manninum pennanum en þá var þar allt lokað og læst. Mér gekk hins vegar ágætlega í prófinu og hef ekki neinar áhyggjur af seinaganginum. Ég hef allavega ekki komið sérstaklega illa út úr því hingað til að mæta of seint í próf.

Sá risessuna í dag og karl föður hennar. Er ég búin að læra of mikið um staðalmyndir þessa önnina eða er pabbinn heldur austurlenskur/búddískur í útliti?

Í fyrra var Ómar í Eurovision. Í ár er hann í kosningum. Hvað verður það næst? Ómar í Idol? Er þetta ekki orðið svolítið þreytt?

4. maí 2007
RIP
Tölvan mín ákvað loksins að gefa upp öndina. Dánarorsök: Sennilega vatnið sem sullaðist yfir hana í september síðastliðinn. Sá lærdómur sem draga má af þessu: Danger! Water kills!
Nei, segi svona. Ég hef ekki gert upp við mig hvort tölvunnar verði sárt saknað. Á henni voru hins vegar myndir sem ég sakna óhemju mikið. Ég er búin að vera "ógó" dugleg að afrita allar myndir af Jódísi reglulega svo ég á þær nú næstum allar ennþá. Nema þessar sem voru teknar síðasta laugardag sem voru sjúklega sætar og minntu mig hrikalega mikið á myndir sem teknar voru af mér í barnæsku. En svona fór um sjóferð þá. Hún sökk í vatnsbaði.
Hitt er annað mál að svo virðist sem ég hafi ekki verið jafn dugleg að afrita námsskjöl. Og var nýbúin að læra fullt þegar þetta gerðist, svo ég þurfti að gera fullt aftur. Jeij. Þá hefði ég nú frekar viljað gera eitthvað þjóðfræðiverkefni tvisvar.
En nóg um það. Ég á víst að vera að læra. Eða sofa.

25. apríl 2007
Hversu slæmt getur það orðið?
10 ára piltar hringja í leit að litla bróður mínum og halda að rödd mín sé rödd bróður míns.
Really? REALLY really? Er rödd mín jafngildi raddar 10 ára stráklings? Eeek.

24. apríl 2007
Í skólanum er gaman, þar leika allir saman... eða hvað?
Jæja, nú fer skólinn aaaalveg að verða búinn. Sem er hvort í senn skrítið og æðislegt.
Ég hlakka til að eyða sumrinu með Jódísi. Í fyrsta sinn á minni lífsleið vona ég innilega að sumarið verði sólríkt og heiðskírt og allt það.

Talandi um Jódísi. Í hvert sinn sem ég skoða myndir af henni fæ ég svona vellíðunarsting í hjarta, lungu og maga. Ég veit ekki hvernig hægt er að lýsa því betur. Fór að pæla í þessu því ég hef ekki skoðað myndir af henni lengi og var fyrst núna að leyfa mér að skoða eitthvað af myndunum sem ég hef tekið undanfarnar vikur, svo mikið að gera í náminu sjáið til. Það er ótrúlegt hvað svona lítið kríli getur haft mikla merkingu. Svo mikil áhrif.

Ég hef reynt sí og æ að taka myndir af litlu tönnslunum hennar. Það hefur ekki gengið vel og ég sit uppi með myndir af ósáttri og vígalegri Jódísi. Svo segir það sig sjálft að þegar myndavélin er hvergi nærri brosir hún gjarnan út að eyrum svo skín í litlar tennur.

Behold, oh ye of little faith. 'Tis the Master of the Universe!

Það er sama hversu fína og flotta bangsa ég læt Jódísi fá, hún vill helst ekki sjá neitt annað en "made in..." miðana. Þegar stóru pappamiðarnir eru ennþá fastir við bangsann er hún alveg í skýjunum. Umbúðir eru líka í miklu uppáhaldi. Hefur einhver skýringu á þessu á reiðum höndum?

13. apríl 2007
Föstudagurinn 13.
Tilvalið að skella inn slettu af myndum af Jódísi í tilefni dagsins.

Það var einn föstudag í mínum ungdómi sem allt gekk á afturfótunum. Ég man nú ekki öll smáatriðin. Þetta tengdist eitthvað langri og viðburðarríkri för minni á vídjóleiguna með vinkonu minni og stóru systur. Það var samt ekki föstudagurinn þrettándi. Held það hafi verið föstudagurinn 25.
M.ö.o. þá á ég engar krassandi sögur af föstudeginum þrettánda.

1. apríl 2007
Aprílgabb?
Ég gerði ekkert suddalegt aprílgabb í ár. Enda ekkert sniðugt að gera of oft, aprílgöbbin mín geta verið svo kvikindisleg að það borgar sig ekki að gabba of oft. ;)

Ég er búin að velta þessu hafnarfjarðarálverakosningamáli smá fyrir mér. Mér var nú svo sem sama hvernig kosningarnar fóru, hafði enga skoðun á þessu álversmáli. En ég hef tekið eftir einu við þessar kosningar sem mér finnst mjög áhugavert. Þessar kosningar og allt umstangið í kringum þær sýndu mér svarið við nokkru sem ég hef lengi velt fyrir mér. Um langt skeið fannst mér að þjóðarkosningar ættu bara að vera málið. Allavega í svona helstu málum. En álverskosningarnar sönnuðu (fyrir mér allavega) að þjóðarkosningar virka ekki. Flestir kusu hvort eð er út frá tilfinningasemi en ekki röksemdarfærslum. Enda ekkert skrítið, þar sem báðar hliðar, þ.e. bæði þeir sem voru með og á móti, voru (að mínu mati) með hrikalega ómálefnalegan áróður í öllum tiltækum miðlum. Ég varð steinhissa þegar ég heyrði útvarpsauglýsingu frá álverinu á þá leið að allir ættu að kjósa stækkun. Ég varð ekki síður hissa þegar ég sá uppstækkað (eða uppblásið?) andlitið á Andra Snæ þar sem hann "talaði frá hjartanu" gegn stækkun. Ég hélt þ.a.l. með hvorugu liði. Ég skil ekki af hverju það að skila auðu er ekki vinsælli iðja. Ég væri til í að sjá "skila auðu" vinna kosningar, þó ekki væri nema einu sinni.
En ef við einföldum málin aðeins, hugsum þetta út frá fimm ára krakkanum. Af hverju erum við með þetta afdala þingmannalýðræði? Af hverju greinum við ekki bara niður stéttarflokka landsins og svo er hlutfallsleg stéttarkosning úr hverjum flokk fyrir sig. Eitthvaðmörg% innflytjenda. Eitthvaðmörg% femínista. Eitthvaðmörg% plebba. Eitthvaðmörg% snobbhæna. Allar stéttir með talsmann á þingi, í réttu hlutfalli við hversu margir landsmenn skipa hvern hóp fyrir sig. Allir memm og allir með hlutverk. ...svo segir allavega boðskapurinn í kúrsinum um fjölmenningarlega kennslu.

16. mars 2007
Klappa saman lófunum...
Ég hef mikið verið að hlæja að ákveðnum svip sem bregður fyrir á Jódísi á ljósmyndum. Það er þessi hvað-ert-þú-að-vilja-upp-á-dekk svipur hennar.
Ég sé núna hvaðan hún fær hann.
Ég fjárfesti í púsl-leikteppi í dag, Jódísi til yfirþyrmandi ánægju. Það er hægt að sjá hana faðma teppið hér. Myndin at arna minnir mig alveg rosalega á Gollrir greyið.
Svo ber að nefna mína hrikalegu bauga. Og það eru heilir tveir mánuðir í allra síðustu skil í náminu. Ég þori ekki einu sinni að ímynda mér hvernig baugarnir verða orðnir þá.

15. mars 2007
Hver er ekki njörður?
Stundum er hægt að vera of mikið þjóðfræðinörd. Þegar mér tekst að stelast frá því að læra á kvöldin fer ég að merkja myndirnar sem ég er búin að taka af Jódísi. Þ.e.a.s. setja nafn þess sem tók myndina (merkilegt nokk, þá er það yfirleitt ég...), hver heldur á henni, dagsetning, tímasetning...
Ég er viss um að samþjóðfræðinördar mínir séu einir um að skilja þetta ;) Kannski sérstaklega Íris, sem var í kúrsinum þar sem hún þurfti að finna bakgrunnsupplýsingar um ókunnar myndir...

Annars skil ég ekkert í sparnaðarauglýsingunni. Þessi sem gerist í "heilanum". Sko, ég var tilbúin til að kaupa auglýsinguna með kvensunni. Þessi týpíska staðalmynd af konu. Bleikir miðar. En af hverju er kallinn með bleika miða? Það stemmir ekki við þessa týpísku staðalmynd sem þeir sýna, af karlmanni sem man ekki nöfn. Iss, að klikka á einhverju svona... það finnst mér vera léleg hugmyndafræði.

14. mars 2007
"Dulleg"
Minns bjó til vefleiðangur fyrir ekki svo löngu. Vefleiðangur = verkefni sem sett er upp á heimasíðuformi. Það fylgja einhverjar stífar kröfur sem þarf að uppfylla svo maður megi kalla verkefni vefleiðangur. Kröfur sem ég fylgdi kannski ekki alveg í ystu æsar (Come on, hverjum dettur í hug að segja við 17 ára unglinga "Þú ert einkaspæjari og þér hefur verið falið það verkefni að..." eða eitthvað álíka ostakennd - sérstaklega þegar maður þekkir ekki nemendahópinn og veit ekkert hvort svona "húmor" fittar).
Skilin eru ekki nærri því strax, en ég hlakka svolítið til að sjá úrlausnir nemenda.

Annars er tvennt sem mér finnst vanta í þessa klámumræðu um Smáralindarbæklinginn víðfræga.
1. Hvernig væri að tala við aðalmarkhóp bæklingsins; unglingana sjálfa!?! Hvað finnst þeim? Hvernig túlka þau þetta? Og eru þau sammála túlkunum klámaða fólksins?
Ég er til dæmis ekki nógu klámd í hugsun. Ég tók ekkert eftir því að þetta væri "klámfenginn bæklingur". Var of upptekin af því að hugsa hvað mér finnst skondið að Svala Björgvinsdóttir sé komin í það að sitja fyrir á Smáralindarbæklingum (sem eru væntanlega á svipuðu plani og Hagkaupabæklingarnir) eftir allar þessar miklu og skrautlegu yfirlýsingar hennar fyrir nokkrum árum síðan um frægð og frama sem biðu í "Amma er rík"-u, því hún væri svo klár businessstelpa sem léti þessa businesskalla í r&b iðnaðinum sko ekki halda að hún væri skækja. Eða eitthvað þannig. Já ég veit, ég veit.. if you can't say something nice, don't say anything at all... Og það er auðvitað ekki fallegt að sparka í liggjandi hund. En stundum er bara svo gaman að sparka.
En já, ég var að tala um klámaða fólkið.
2. Hvaða máli skiptir þetta? Stundum kemur upp í mér svona "af hverju" púki (aka rassálfur fyrir vel lesna aðila). Púkinn at arna er ekki mjög nenninn og er því duglegur að segja mér að hlutir skipti ekki máli. Og það geta verið alls konar hlutir. Í þessu tilfelli réðst púkinn á téða klámumræðu, og hér eru rökin hans: Iss, þú sást hvort eð er ekki að bæklingurinn væri klámaður. Þessi umræða á því ekki við þig. Láttu bara klámaða fólkið um þetta.
Og ég hallast sannast sagna að því að kaupa rök akkurupúkans. Af hverju? Jú, vegna þess að mér finnst vera mikilvægara að þjálfa unglinga í gagnrýnni hugsun, að kunna að vega og meta heimildir, að vera vakandi fyrir öllum áróðri, heldur en að kenna þeim bara að horfa á hvort hlutir séu klámfengnir eður ei. Að kenna fólki að einblína á klámd er svona svolítið eins og að segja við hóp af óléttum konum að til sé eitthvað sem heitir Streptókokkasýking í leggöngum sem getur leitt til dauða ungbarns. Óháð því hversu algengt svoleiðis er og hverjar líkurnar séu. Og er fólk að saka Smárarlindarblaðið um heilaþvott? Auðvelt að sjá bjálkann, já. Mér finnst þetta klámaða tal bara vera svo mikil ofureinföldun eitthvað. Jú, auðvitað er gott að hafa svona hluti í huga, en ættu menn ekki frekar að vera að velta því fyrir sér hugmyndafræði guðlausa Smáralindarbæklingsins er og hver tilgangur hans sé ? Hvað Smáralind vill selja okkur? Af hverju þeir grípa í þessa hugmyndafræði en ekki einhverja aðra? Hver markhópurinn sé? - M.ö.o. setja þetta í víðara samhengi!
Hvort skiptir meira máli í þessu kapítalíska samfélagi; að rýna í klámdina eða að rýna í áróðurstilburði? Ef ég skil uppeldisfræðingana rétt þá virðast þeir sammála um að einstaklingar á fermingaraldri séu hvort eð er innviklaðir í eigið sjálf og uppteknir af eigin útliti - Skiptir þá einhverju máli hvort þeir sjái klámda bæklinga eða eitthvað annað? Finna þeir ekki alltaf eitthvað til að mistúlka og bera sig saman við? Unglingar eru heldur ekkert einungis að bera sig saman við klámaða hluti. Eða, eitthvað grunar mig að fleiri þættir en klámd komi hér við sögu. Svo er líka þetta með að fólk sem er innviklað að einhverju leyti sér yfirleitt eigið hugarfóstur í öllu. Svona eins og fólkið sem skrifar bækur um að ef maður beiti talnafræði og dulmálskóðum á Biblíuna sé hægt að lesa úr henni spádóma um ógnartíð Hitlers og hrun turnanna tveggja. Já, slíkar bækur eru í alvörunni til.
Eins og ég sé það, þá getur sá sem rýnir í áróðurinn séð klámdina líka (og þarf þess í raun, þegar farið er út í að sjá heildarmyndina og skoða samfélagsaðstæður) ef hann vill það, en þessi klámaði sem rýnir í klámdina sér ekkert nema eigin klámd því hann er alltaf að hugsa um klámd og aftur klámd.

P.S. Fær einhver annar á tilfinninguna um að þetta sé svolítið svona "heimur versnandi fer" umræða? Hefur einhver tékkað á því hvort svona klámaðir bæklingar séu nýmæli? Var klámd kannski bara ekki til staðar fyrir 50 árum? 70 árum? 100 árum? 1000 árum?
P.P.S. Sá fyrsti sem yfirfærir vefleiðangursverkefnið yfir á Smáraklámið og býr til eigin Smáralindarbækling (klámd ekki nauðsyn og notast eftir vild og getu viðkomandi) fær stjörnu í kladdann. Ha? Enginn? Hvað er þetta, hvar er hvatinn?!? Hvar er metnaðurinn?!?

12. mars 2007
Hálft ár
Já, hún Jódís litla er orðin sex mánaða stór. Risastór.
Kannski ekki skrítið þar sem hún er ákaflega dugleg að borða matinn sinn. Svo dugleg að hún er farin að stinga puttunum á kaf í klístrið við hvert tækifæri.
Annars er hún orðin það stór að hún er bara byrjuð í löggu- og bófaleik. Passar einkar vel við nýnasistaklippinguna hennar ;) Hún er samt komin með "slatta" af hári... það vill bara ekki sjást á myndum. Really. Really, really!

9. mars 2007
Jódís og Þór
Hún Jódís mín á eitt sameiginlegt með þrumuguðnum Þór. Hún á Þórshamar sem snýr ávallt aftur til hennar, sama hvert hún hendir honum. Hér eru þó engin guðlegir kraftar að verki, aðeins margar hendur sem stjana við litla dömu.
En það er spurning hvort endursegja megi Snorra-Eddu með þetta í huga...

Annars er hún Jódís litla bara orðin ansi stór. Eða er þetta kannski betra dæmi um stærðina? Óneitanlega fullorðinssvipur með henni þarna.

Annars er það í fréttum að æfingakennslan sem slík er búin. Núna hefjast hins vegar verkefnaskil. Stór hluti af því hópavinnuverkefni. Ég var svo dugleg að búa til svona "verkefnaskilatöflu". 4 skiladagar eru búnir. 13 eru eftir. Og þá er ekki einu sinni öll vinnan upptalin. Það er auðvitað bara vitleysa að fara í svona tímakrefjandi nám...

28. febrúar 2007
Hópvinna
Ég er búin að komast að því af hverju ítalir, grikkir og allar þessar "blóðheitu" þjóðir eru svona tilfinningaæstar og rifrildaóðar. Sko. Það er skringilega algengt hjá þeim að vilja gera allt saman. Elda saman, flytja saman, kaupa inn í sameiningu, o.s.frv. Þar er maður ekki einstaklingur. Þar er maður hluti af stærri heild. (Ef þið eruð ekki sannfærð, þá skulið þið bara horfa á heimildamyndina "The Godfather". Hún útskýrir þetta allt saman mjög vel.) Og eins og við öll eigum að vita, þá er hópavinna viðbjóður. Jújú, maður getur svo sem lent í hóp með ágætu fólki og svona einstaka, allra einstaka sinnum þá lendir maður í hóp með einstaklingum sem maður vinnur rosalega vel með. En það gerist ekki oft. Því þegar maður lendir í hópi með fólki sem manni líkar við endar maður yfirleitt á því að kjafta meira um heima og geima heldur en að vinna að verkefninu sjálfu. Sem er vissulega gaman, en skilar litlum afurðum. Svo kemur það líka fyrir, sérstaklega þegar maður er í námi svipuðu mínu, að maður lendir í hóp með einstaklingum sem samvinnan gengur bara ekkert í. Þetta gerist gjarnan þegar kennarinn skipar manni í hópa. Þá verður maður eins og ítali/grikki/blóðheit þjóð. Tilfinningaæstur og rifrildaóður. Og bitur.

Hugsum um heilsuna. Afnemum hópavinnu.

P.S. Neinei, hópavinna er ágæt. Stundum fær maður samt ALVEG nóg af henni.
16. febrúar 2007
Gól um miðjar nætur
Já. Ég var að læra á ókristilegum tímum, eins og gjarnan gerist. Svo var ég ákkúrat að ljúka þegar ég heyri skaðræðisgól af neðri hæðinni. Ég hendist auðvitað niður, viðbúin öllu (enda hafði Jódis fengið 5 mánaða sprautuna "aðfarardaginn"). Tók þá ekki á móti mér þetta einlæga prakkarabros. Bros út að eyrum.

Þá er bara spurningin. Gólaði hún út af því að hún vaknaði og sá enga mömmu í rúminu við hliðina á sér, eða var hana að dreyma að pelinn hennar væri týndur og tröllum gefinn?

Þegar stórt er spurt...

9. febrúar 2007
Söngl
Þekkiði lagið "Ríðum heim að Hólum"?
Játning: Ég er búin að semja nýjan texta. Fyrsta setning: "Stelpan mín er sæt og fín".
Það eru tvö vers.
Heil tvö.
Ég veit. Þetta er ógó nördalegt.
En Jódís Halla er allavega rosalega ánægð með mömmu sína. Og Unnar frænda sinn.
Sérstaklega þegar þau syngja saman lagið hennar.

Játning 2: Þetta er ekki í fyrsta lagið sem ég hef afskræmt svona.

Svona fer þegar skólinn stelur af mér félagslífinu.
Þar að auki er ég nokkurn veginn gengin aftur í barndóm.
Farin að gefa frá mér dýrahljóð þegar ég skipti á Jódísi (sko, það eru dýramyndir á bleyjunni, er að kenna henni hljóðin).
Grey samnemendur mínir ættu að geta vitnað um þetta, enda þurfa þau að þola fimmÁRA brandarana mína trekk í trekk.

6. febrúar 2007
Kosningar
Mér finnst það ættu alltaf að vera skólakosningar. Þá fengi maður frítt nammi í hverri viku. Jafnvel þótt það sé vont nammi.
Kosningavikan í Versló var auðvitað bara það allra besta. Frítt nammi, fríir drykkir, frítt dót, frír matur og jafnvel fríir íspinnar. Ekki jafn mikið af vondu nammi. Þ.e.a.s. hlutfallslega séð, ekki út frá magni.
Mér finnst að Alþingiskosningar, bæjarstjórakosningar og forsetakosningar ættu að taka upp þennan framúrskarandi sið. Burt með fríar blöðrur og kaffi. Burt með það að fá ekkert ef maður á ekki leið INN í kosningaskrifstofuna. Frítt dót, nammi, matur fyrir fólk á förnum vegi. Eða já. Fólk á afskekktum vegi.

Það væri svona öskudagur fullorðna fólksins.

En já, af skemmtilegri málefnum. Núna er byrjað að birta á ný, svo það er orðið aðeins auðveldara að taka myndir af henni Jódísi Höllu án þess að nota flassið. Gallinn er hins vegar sá að hún er farin að hreyfa sig svo mikið og geta svo mikið að það er erfitt að passa að hún ráðist ekki á myndavélina og slefi yfir hana alla. Þessi elska.
Og til að útskýra þetta, þá var mamma að leika sér með snuðið hennar og einn naghringinn. Úr varð nagsnuðið ógurlega.

22. janúar 2007
Orsök langra miðvikudaga
Mér reiknast svo til að ég sé í 20 einingum þessa önn. En það er bara ef við miðum við þær einingar sem gefnar eru fyrir námið. Ef við hugsum aðeins út fyrir kassann og miðum við vinnuálagið, skyldumætingu og fleira, þá er ég í svona 25-30 einingum. Ég er frá 10 til 16 á mánudögum. 8 til 16 á miðvikudögum. Og það eru bara löngu dagarnir.
Þetta væri auðvitað ekki svo slæmt, nema af því að ég vil helst eyða öllum mínum vökustundum með Jódísi.

Niðurstaða: Félagsleg hæfni mín, eða, það litla sem var eftir af henni, mun ná sögulegu lágmarki næstu 3-4 mánuði. Þið skiljið vonandi ef símhringingar, sms og jafnvel email frá mér verða af skornum skammti. Eða jafnvel ekki til staðar.
Sjáumst í vor.


18. janúar 2007
Laaangir miðvikudagar
Þá er fyrsta skólavikan að verða búin. Vonandi verður þessi önn búin sem fyrst.



14. janúar 2007
Litlar táslur
Sumir eru búnir að uppgötva tærnar á sér.
Svo tók hún upp á því í gær að sofna svona.

12. janúar 2007
Barnaföt
Einhver ykkar ættu að kannast við fötin sem hún er í hér. Tvær flíkur á myndinni eru frá Bandaríkjunum. Önnur er ætluð 18 mánaða barni og hin 12-18 mánaða barni. Jódís Halla er 4 mánaða í dag.

Og áður en þið komist að þeirri niðurstöðu að ég sé hætt að tala um nokkuð annað en Jódísi og málefni tengd henni, þá skal ég skella á ykkur einni Jódísarsnauðri staðreynd. Ég setti á mig eyeliner á miðvikudaginn og varð hugsað til þess að ég hef ekki gert það síðan einhvern tímann síðasta vor.

Og já, ég klippti á mér hárið.

11. janúar 2007
Krúttskalinn
Ég er búin að fatta hvað er sætara. Það er þegar hún nuddar sér um augun af þreytu en neitar að sofna af einskærri þrjósku. Haha.

7. janúar 2007
Ótrúlegt en satt.
Þegar ég svæfi Jódísi set ég alltaf sama geisladiskinn á. Rétt rúmlega síðustu þrjá mánuði eða svo hef ég sem sagt hlustað á sama geisladiskinn, oft á dag. Stundum jafnvel 4-5 sinnum í röð ef hún neitar að sofna. Og ég er ekki enn komin með ógeð af þessum disk.

Ég veit ekki hvort er sætara, kátína hennar þegar hún er nývöknuð eða hláturgusurnar sem koma út úr henni þegar hún er komin í svefngalsa.

6. janúar 2007
Jólin búin!
Já, jólin eru sko sannarlega búin þegar jólasveinarnir eru horfnir af mjólkurfernunum.
Já. Ég mætti vera duglegri að uppfæra síðuna.
Ég var að hugsa um eitthvað agalega sniðugt í nótt sem ég ætlaði að hripa niður hérna.
En ég sofnaði. Og gleymdi því sem ég var að hugsa.

En ég get sagt frá öðru. Ég var að stofna bankareikning síðasta fimmtudag. Reyndar tókst mér að stofna vitlausan bankareikning. Þá meina ég ekki að hann sé heimskur, heldur að ég ætlaði að stofna öðruvísi týpu. En. Þegar ég skoðaði reikninginn inn á heimabankanum sá ég að fyrsta færslan í honum er dagsett 30. 12. 1899. Ætli ég eigi tímavél og viti ekki af því?

24. desember 2006
Tímarnir breytast, og mennirnir með.
Ég hef haft það fyrir hálfgerðan sið á aðfangadagskvöld að vaka fram eftir öllu, jafnvel upp undir morgun, við það að lesa einhverja bókina sem "leyndist" í jólapökkunum (fékk yfirleitt að ráða hvað var í mínum pökkum), já eða í versta falli horfa á einhvern dvd-diskinn sem "leyndist" þar líka. Eitthvað grunar mig að ég eigi eftir að lognast út af snemma kvölds í ár. Ég fæ ekki einu sinni eina einustu bók, svo ég viti til. Ég á nefnilega svo margar að það er orðið vandamál að hýsa þær allar og hef hvort eð er sama og engan tíma til að lesa.
Walk the line bíður mín undir jólatrénu. Ég hlakka til að horfa á hana... hvenær sem það verður.
Svo hlakka ég alveg rosalega til að sjá litla bróður opna alla pakkana sína.

23. desember 2006
Lok, lok, og læs, allt í stáli...
Ég var fengin til að fara með litla bróður og vin hans í bíó í Smáralind. Eins og góðri stórusystur sæmir byrjaði ég á að trítla með þá í Hagkaup og keypti popp og kók handa þeim. Svo komum við að bíóinnganginum og herra miðavörður segir "Ég get ekki hleypt ykkur inn með þetta!". Fyrstu viðbrögð hjá mér voru "Ha? Ertu ekki að grínast?". Herra bitur maður segir þá "Við seljum þetta hér fyrir innan. Ég get ekki hleypt ykkur inn með allt þetta.".
Mér varð hugsað til Radíusbræðra og grínsins sem þeir gerðu um einmitt slíkar aðstæður. Mér þótti þetta of fyndið til að æsa mig upp á móti kallinum, svo ég hljóp með kræsingarnar út í bíl.
Hann kippti sér hins vegar ekkert upp við það að ég var að stelast með 10 ára stráka á mynd sem er bönnuð innan, hva, 12 ára?

20. desember 2006
Ojæja, loksins kom að því...
Undanfarið hef ég oftar en einu sinni og oftar en þrisvar hugsað eitt og annað sem ætti að koma hér inn. Gallinn við það að hugsa svona er sá að tölvurnar eru ekki ennþá orðnar nógu þróaðar til að stunda hugsanalestur. Pant fá svoleiðis í jólagjöf samt. Þekkið þið ekki einhvern Georg Gírlausan sem gæti reddað þessu fyrir mig?

Kosturinn við það að stjórna "bloggforminu" sjálfur í stað þess að vera með staðlaða bloggsíðu er sá að ég get staðið í "skjalafölsun" og sett þá dagsetningu sem mér sýnist á hugleiðingarnar. Svona svo þær passi við þann tíma sem ég hugsaði þær frekar en þann tíma sem ég náði loksins að setjast niður við tölvuna og pikka þær inn.

17. desember 2006
Afrakstur í jólafríinu
Mér reiknast svo til að fyrstu þrjá dagana í jólafríinu hafi ég náð að:

Vera með Jódísi allar vökustundir hennar (Bezt í heimi!!!)
Baka
Horfa á sjónvarp/vídjó
Sauma út (má reyndar ekki gera mikið meira af því fyrr en í sumar, skilst það sé vont fyrir brjóstamjólkina, úff, púff)
Fara í fýluferð með "helvítis gæruna"
Skipta helvítis gærunni, haha
Versla nær allar jólagjafirnar
Eiga notalegar stundir með fjölskyldunni
Fara yfir gögn fyrir pabba
Kíkja á netið
Fara með Jódísi í læknisskoðun
Lesa teiknimyndasögu um íranska konu
Gefa litla frænda mínum í skóinn
Sofa
Taka myndir
Fara í heimsókn til ömmu
Byrja að gera herbergið mitt upp, þ.e. gera það barnavænna útlits

Ég er ekki ennþá búin að klára að barnavæða herbergið, gengur hægt þegar aðallega er unnið á meðan lítil dama sefur, en er komin langt með það. Skelli upp myndum þegar verkinu lýkur.


9. desember 2006
"Ég ætla að verða vitrarinn..."
Um daginn var ég að hugsa um spurninguna "Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert stór?". Þegar við spyrjum börn, unglinga eða fólk á borð við mig sem sér ekki fyrir endann á náminu að þessu eigum við það til að ætlast til þess að fá eitt svar, eitt starf. Slökkviliðsmaður. Hjúkrunarkona. Eitthvað í þá áttina. Sá hugsunarháttur er í raun ansi úreltur. Ein stærsta hætta sem steðjar að starfsmönnum í dag er kulnun í starfi og uppsögn sökum aldurs. Það er því orðið mun algengara að fólk sinni fleiri en einum "stórum" störfum eða eigi fleiri en einn starfsferil um ævina. Við ættum kannski að muna eftir spurningunni "Og hvað fleira?" næst þegar sá sem við spyrjum gefur okkur bara eitt svar.


22. nóvember 2006
Hringja inn jólin?
Já, það er spurning hvort maður eigi að hringja inn jólin? (sjá neðst á myndinni).
Símatæknin hefur klárlega tekið við af klukknabjöllum!
Ég sá þetta fyrir næstum því mánuði síðan og fer enn að brosa að þessu.


19. nóvember 2006
A new look.